Þann 14. desember kl. 20.30 verða árlegir Ljósberatónleikar í Akureyrarkirkju. Þetta er fjórða árið
í röð sem þessir tónleikar eru haldnir. Sérstakur gestur tónleikanna í ár er Egill Ólafsson söngvari en ásamt honum koma
fram Björg Þórhallsdóttir sópran, Eyrún Unnarsdóttir mezzósópran, Óskar Pétursson tenór, Eldri barnakór og
Stúlknakór Akureyrarkirkju, Elísabet Waage hörpuleikari ásamt strengjasveit norðlenskra tónlistarmanna undir stjórn Láru Sóleyjar
Jóhannsdóttur fiðluleikara. Organistar og kórstjórar eru Eyþór Ingi Jónsson, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og Hilmar
Örn Agnarsson. Frumflutt verður sérstakt jólalag Ljósberans 2011, sem héðan í frá verður að árlegum viðburði og er fengur
af því að fá ný íslensk lög í jólalagaflóruna. Höfundur jólalags Ljósberans í ár er norðlenski
tónlistarmaðurinn góðkunni Daníel Þorsteinsson. Allir sem að tónleikunum koma gefa vinnu sína og aðgangseyrir rennur óskiptur til
sjóðsins. Umsjón með tónleikunum í ár, og frá upphafi, hefur Björg Þórhallsdóttir. Líknarsjóðurinn
Ljósberinn var stofnaður til minningar um sr. Þórhall Höskuldsson, fyrrverandi sóknarprest við kirkjuna, fyrir tilstuðlan fjölskyldu hans, en sr.
Þórhalli var mjög umhugað um líknar- og velferðarmál. Markmið sjóðsins er að veita líknar- og viðlagaastoð til Akureyringa
með sérstaka áherslu á aðstoð fyrir jól. Prestar kirkjunnar sjá um að úthluta úr sjóðnum. Tónleikarnir ásamt
fjáröflun og gjöfum tengdum þeim hafa verið kjölfestan í fjáröflun sjóðsins, ásamt gjöfum sem honum hafa borist og
framlögum í ljósaltari (ljósbera) kirkjunnar. Hægt er að gefa ábendingar eða koma á framfæri umsóknum um framlög úr
sjóðnum til presta Akureyrarkirkju og er farið með allar umsóknir og úthlutanir sem trúnaðarmál. Sjóðurinn er í vörslu
Akureyrarkirkju og hægt er að leggja fjárframlög inn á reikning sjóðsins 0302-13-701414, kt. 410169-6149.