28.10.2010
Næstkomandi þriðjudag, 2. nóvember kl. 15.00, boðum við öll fermingarbörn vetrarins í kirkjuna en þá fer fram hin árlega
söfnun fermingarbarna á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar. Í ár verður safnað í þágu barna í Úganda. Prestar
kirkjunnar munu taka á móti öllum fermingarbörnunum á þriðjudaginn og leiðbeina þeim með verkefnið, þau verða 3 í
hóp og hver hópur fer með einn bauk og götukort sem verður útdeilt á staðnum ásamt almennum upplýsingum. Þetta verkefni er hluti af
fermingarfræðslunni og leggjum við ríka áherslu á að börnin mæti, þetta er mikilvægur vettvangur til að kenna samlíðan og
umhyggju í verki.
Einngi viljum við biðja fólk að taka vel á móti fermingarbörnunum.