Kirkjulistavika, sunnudagur 10. maí

Hátíðarguðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl. 11.00.
Dr. David Porter, dómprófastur í Coventry, prédikar. Prestar eru sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir, sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir, sr. Jóna Lovísa Jónsdóttir og sr. Guðmundur Guðmundsson. Kór Akureyrarkirkju, Stúlknakór Akureyrarkirkju og kammerkórinn Hymnodia syngja. Eyþór Ingi Jónsson og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir stýra tónlistarflutningi og leika á orgel.

„Upp, upp, mín sál“, sýning Örnu Valsdóttur í turnum kirkjunnar er opin frá kl. 11.00 - 16.00.

Hátíðartónleikar Kórs Akureyrarkirkju kl. 16.00.
Kór Akureyrarkirkju ásamt kammersveit og einsöngvurunum Mörtu Guðrúnu Halldórsdóttur, sópran, Braga Bergþórssyni, tenór, og Benedikt Ingólfssyni, bassa. Stjórnandi er Eyþór Ingi Jónsson.
Miðaverð kr. 2000, kr. 1500 fyrir ellilífeyrisþega og fólk á aldrinum 12 - 18 ára.
(Ekki er tekið við
 kortum).

Sýning Bryndísar Kondrup, „Effaþa“, er opin í Safnaðarheimilinu 
frá kl. 13.00 til 16.00. 
Aðgangur ókeypis.