Þriðja samveran í röðinni "Mánudagar gegn mæðu" er næstkomandi mánudag, 10. nóvember kl. 20.00 í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.
Þar fjallar Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, um Syndirnar sjö. Hermann Arason sér um
tónlistina og heitt verður á könnunni.
Fundarstjóri er Margrét Blöndal. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Aðgangur er ókeypis enda gefa allir sem að samverunum koma vinnu sína.
Einnig minnum við á Lögmannavaktina, ókeypis lögfræðiaðstoð í Safnaðarheimilinu alla mánudaga frá kl. 17.30
til 19.00. Tímapantanir í síma 462-7700, milli kl. 9.00 og 13.00, alla virka daga.