Minningarstund vegna fósturláta verður haldin í Höfðakapellu á Akureyri fimmtudaginn 13. september kl. 16.30. Missir barns á fyrstu
vikum meðgöngu er ekki síður sár en annar missir. Sorg vegna fósturláts fær þó gjarnan minni viðurkenningu samfélagsins en
önnur sorg, oft vegna þess að fáir vita af væntanlegu barni eða missi þess. Minningarstundin er hugsuð til að koma til móts við þau
ótalmörgu sem upplifað hafa sorg vegna fósturláts. Minningarstundin er haldin í samvinnu Sjúkrahússins á Akureyri og
Útfararþjónustu kirkjugarða Akureyrar.
Prestur er sr. Guðrún Eggertsdóttir. Tónlistarflutning annast, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, organisti og Sigríður Hulda
Arnardóttir, söngkona.
Athöfnin er öllum opin.