Fréttir

Styrktartónleikar í kvöld kl. 20.30

Í kvöld, miðvikudagskvöldið 15.desember, verða haldnir tónleikar til styrktar Líknarsjóðnum Ljósberanum.En sjóður þessi var stofnaður til minningar um sr.Þórhall Höskuldsson, fyrrverandi sóknarprest Akureyrarkirkju, sem var mjög umhugað um líknar- og velferðarmál.

Safnaðarblöð Akureyrarkirkju

Við viljum vekja athygli á að hægt er að nálgast Safnaðarblöð Akureyrarkirkju hér.

Syngjum jólin inn

Hinir árlegu jólasöngvar Kórs Akureyrarkirkju verða haldnir sunnudaginn 12.desember kl.17.00 og 20.00.Á efnisskránni eru falleg og hátíðleg jólalög úr ýmsum áttum, bæði gömul og ný.

Aðventuhátíð barnanna

Sunnudaginn 12.desember verður Aðventuhátíð barnanna í Akureyrarkirkju kl.11.00.Umsjón í höndum sr.Hildar Eirar og Sunnu Dóru Möller.Yngri barnakór Akureyrarkirkju og Kór Lundarskóla syngja.

Sunnudagur 5. desember

Guðsþjónusta í kapellu kl.11.00.Prestur er sr.Svavar Alfreð Jónsson.Félagar úr messuhópi aðstoða.Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja.Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.

Mömmumorgunn á aðventu

Fjölmennt á mömmumorgni í Akureyrarkirkju, súkkulaði, smákökur og huggulegheit :-) Hvetjum mömmur og pabba til að koma og eiga notalega stund með ungbörnum sínum.

Samvera eldri borgara

Fimmtudaginn 2.desember er samvera eldri borgara í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju og hefst hún kl.15.00.Óskar Pétursson kemur og syngur einsöng.Yngri barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur.

Leikhúsið 10 fingur í Akureyrarkirkju

Þann 1.desember kl.16.00 kemur leikhúsið 10 fingur í heimsókn í Akureyrarkirkju með sýninguna Jólaleikur.Það er Helga Arnalds sem stýrir leikhúsinu og hafa sýningar leikhússins hlotið almenna viðurkenningur fyrir fallegt handbragð og hugvitsemi í leikbrúðugerð.

Sunnudagur 28. nóvember

Aðventuhátíð fyrir alla fjölskylduna í Akureyrarkirkju kl.11.00.Prestur er sr.Svavar Alfreð Jónsson.Félagar úr messuhópi aðstoða.Yngri barnakór og Kór Akureyrarkirkju syngja.

Bingó, bingó

Unglingastarf kirkjunnar stendur fyrir fjáröflunarbingói til styrktar Mæðrastyrksnefndar, fimmtudaginn 2.desember kl.20.00, í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.Bingóspjaldið kostar kr.