26.11.2008
Fjölskylduguðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl.11.00.Þá fáum við heimsókn frá brúðuleikhúsi, Bernd Ogrodnik ætlar að koma og sýna okkur leiksýninguna, "Pönnukakan
hennar Grýlu", en það er skemmtileg og falleg jólasaga sem er unnin upp úr evrópskri þjóðsögu sem flestir ættu að kannast
við.
21.11.2008
Fimmta og síðasta samveran í röðinni, "Mánudagar gegn mæðu", verður í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju, mánudaginn 24.nóvember kl.20.00.Að þessu sinni mun Dr.Björg Bjarnadóttir, sálfræðingur, tala um vonina.
18.11.2008
Loksins er komið að því! Fyrsta plata Hymnodiu er komin út! Fyrstu viðtökur lofa mjög góðu.Platan þykir fyrsta flokks bæði
hið innra og ytra.Henni verður dreift í verslanir á næstu dögum en einnig er hægt að panta eintak með því að senda póst
á netfangið hymnodia@akirkja.
17.11.2008
Fjórða samveran í röðinni "Mánudagar gegn mæðu" er í dag, mánudaginn 17.nóvember kl.20.00, í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.Þar fjallar Bryndís Símonardóttir, fjölskylduráðgjafi, um fjölskylduna og mikilvægi hennar.
14.11.2008
Næstkomandi sunnudag er árlegur kirkjudagur í Akureyrarkirkju.Þar verður mikið um dýrðir, dagskráin hefst með sunnudagaskóla
í kapellu kirkjunnar kl.11.00.Klukkan 14.00 er svo hátíðarmessa í kirkjunni.
07.11.2008
Þriðja samveran í röðinni "Mánudagar gegn mæðu" er næstkomandi mánudag, 10.nóvember kl.20.00 í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.Þar fjallar Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, um Syndirnar sjö.
05.11.2008
Síðastliðinn sunnudag kom Stoppleikhópurinn í heimsókn í sunnudagaskólann og sýndi okkur leikritið Ósýnilegi vinurinn, um
hundrað manns komu að sjá sýninguna sem var afar skemmtileg og þökkum við Stoppleikhópnum fyrir.
05.11.2008
Laugardaginn 8.nóvember halda þeir Heimir Bjarni Ingimarsson, baritón og Aladár Rácz, píanóleikari, tónleika í
Akureyrarkirkju ásamt Stúlknakór Akureyrarkirkju, stjórnandi kórsins er Eyþór Ingi Jónsson.
05.11.2008
Á morgun, fimmtudaginn 6.nóvember kl.15.00, er samvera eldri borgara í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.Gestur er Auður
Guðjónsdóttir, kennar.Stúlknakór Akureyrarkirkju syngur undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar.