02.09.2008
Kynningarfundur á 12-spora starfinu verður haldinn í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju miðvikudagskvöldið 10.september og þriðjudagskvöldið 16.september kl.20.00.Hópastarfið hefst síðan miðvikudagskvöldið 17.
27.08.2008
Á Akureyrarvöku munu nokkrir söfnuðir taka þátt í sameiginlegri helgistund við Kirkjubæ kl.14.00.Söngur verður í umsjá
Hjálpræðishersins, félaga úr Fíladelfíu og félaga úr Kórs Glerárkirkju undir stjórn Hjartar Steinbergssonar.
20.08.2008
Þessa dagana eru ungmenni úr Brekkuskóla, Lundarskóla og Oddeyrarskóla að hefja fermingarfræðsluna með ferð í
Fermingarskóla á Vestmannsvatni.Þetta er í þriðja sinn sem fermingarbörnin eru boðuð að Vestmannsvatni, en reynsla okkar af þessum samverum þar er ákaflega
góð.
15.08.2008
Næstkomandi föstudagskvöld verða haldnir tónleikar í Akureyrarkirkju þar sem fram koma þau Margrét Brynjarsdóttir og Gísli
Jóhann Grétarsson, en þau eru búsett í Svíþjóð um þessar mundir þar sem þau stunda nám í
tónlist.
12.08.2008
Fermingarfræðslan hefst með ferð í Fermingarskóla á Vestmannsvatni.Farið er í þremur hópum og gistir hver hópur eina
nótt.Þetta er í þriðja sinn sem fermingarbörnin eru boðuð að Vestmannsvatni, en reynsla okkar af þessum samverum þar er ákaflega
góð.
06.08.2008
Söng- og helgistund kl.20.30 í Akureyrarkirkju næstkomandi sunnudagskvöld, 10.ágúst.Prestur er sr.Jóna Lísa
Þorsteinsdóttir.Rafn Sveinsson og Gunnar Tryggvason flytja létta trúarsöngva.
31.07.2008
Sólin hefur skinið
skært á bæjarbúa og gesti sem gleðjast yfir birtu og yl hennar.Og nú nálgast verslunarmannahelgin með mikla og fjölbreytta dagskrá fyrir
unga sem aldna.
23.07.2008
Síðustu tónleikar sumarsins í tónleikaröðinni Sumartónleikar í Akureyrarkirkju
verða á sunnudaginn, 27.júlí klukkan 17.Tónlistarmenn að þessu sinni er organisti kirkjunnar, Eyþór Ingi Jónsson, sem hefur fengið
til liðs við sig söngvarann Michael Jón Clarke og munu þeir félagar flytja íslensk sálmalög á óhefðbundinn hátt.
17.07.2008
Séra Birgir Snæbjörnsson, fyrrverandi sóknarprestur í Akureyrarkirkju, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 17.júlí. Birgir var fæddur á Akureyri 20.ágúst 1929.
15.07.2008
Óvenjuleg
tónlistardagskrá verður í boði í Akureyrarkirkju næstkomandi sunnudag, þann 20.júlí klukkan 17.Það er hljómsveitin
Spilmenn Ríkínís sem mun flytja íslensk þjóðlög fyrir tónleikagesti og með í för eru sjaldséð gömul
íslensk hljóðfæri svo sem symfón, langspil, saltari og bumba.